6.9.2007
Naan
2/3 bolli heitt vatn
1 tsk þurrger
1 tsk sykur
2 bollar (300 g) hveiti
1 tsk salt
4 msk brætt ghee (eða olía)
2 msk jógúrt
2 tsk kalonji (svört laukfræ)
1. Pískaðu saman vatn, ger og sykur í lítilli skál þar til ger er uppleyst í vatninu. Hyldu og leyfðu að standa á heitum stað í 10 mín
2. Sigtaðu hveiti og salt í stóra skál og bættu við gerblöndunni, helmingnum af ghee-inu og öllu því jógúrti sem á að fara í uppskriftina. Hnoðaðu saman á plötu í ca 5 mín eða þar til deig er orðið mjúkt og einsleitt.
3. Leyfið deigi að hefast í stórri smurðri lokaðri skál í 1 og 1/2 tíma á heitum stað eða þar til deig hefur tvöfaldast.
4. Hnoðaðu deigið aftur á góðu undirlagi í 5 mín og skiptu því upp í 6 jafnstóra hluta. Flettu þeim hverjum fyrir sig út þannig að þeir myndi flatköku sem er u.þ.b. 20 cm í þvermál.
5. Bökunargrind hulin álpappír og smurt fitu á. Hvert naan brauð bakað eitt í einu á því undir mjög heitu grilli í ca 2 mín á hverri hlið eða þar til það hefur lyft sér upp og brúnast eilítið. Þá er brauðið tekið og burstað með afgangnum af fitunni og laukfræjum dreift yfir og grillað áfram í ca 30 sek.
Flokkur: Kökur, brauð og annað bakað | Breytt 9.9.2007 kl. 00:55 | Facebook
Athugasemdir
Ohh maður verður alltaf svo svangur á að skoða bloggið hjá þér
Ég er allavega komin með mikla matarást á þér hehe
Heya (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 11:37
Verð að fara að bjóða ykkur í mat elskurnar. Má bjóða þér indverskt?
Soffía, 9.9.2007 kl. 00:56
Indverskt, við höfum bara hvorugt smakkað indverskt, annað en karrý haha.
Doddi og Heya (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 14:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.