Færsluflokkur: Kökur, brauð og annað bakað

Hráfæðiskaka

Botn:
2 bollar möndlur
2 bollar döðlur

Leggja döðlurnar í bleyti í 20 mín.  Hakka möndlurnar í matvinnsluvél eða blender.  Möndlur og döðlur eru hakkaðar í matvinnsluvél og sett í form sem hefur verið klætt með bökunarpappír og botninn þá kældur. 

Krem:
2 bananar
1 lítið avókadó eða 1/2 stórt
5 msk kókosolía (brædd undir heitu vatni)
5 msk hreint kakó
5 msk agave síróp

Allt nema kókosolían sett í matvinnsluvél og unnið vel saman og að síðustu er kókosolíunni hellt í blönduna á meðan matvinnsluvélin er í gangi.  Krem er smurt ofan á botn og kælt.  Gott er að rista kókosflögur og setja ofan á kökuna áður en hún er kæld. 


Hjónabandssæla

250 g smjörlíki
200 g sykur
280 g hveiti
150 g haframjöl
1 tsk natron
1 egg
Rabarbarasulta

Passar vel í tvö 24 cm form og bakað í ca 20 mín v/200 gráður


Haframjölsbollur

1½ dl haframjöl
3 dl vatn
1/2 pk þurrger (eða 25 gr pressuger)
2 dl rifnar gulrætur
1-2 dl jógúrt
2 msk olía
1 tsk salt
ca 500 gr hveiti
 

Setjið haframjöl og vatn í pott og sjóðið í 1-2 mín og hrærið í á meðan.  Þegar þetta er orðinn hafragrautur er potturinn tekinn af hellunni.Kælið grautinn þar til hann er kaldur.  Setjið gulrætur, jógúrt, olíu og salt í og hrærið vel saman.  Blandið hveitinu og gerinu saman og hrærið saman við grautinn.  Deigið á að vera frekar blautt og klístrað.  Setjið svo deigið í ísskápinn og látið hefast þar yfir nótt.Formið bollur með skeið.  Látið þær hefast á bökunarplötu í 15 mín.  Bakið v. 200°C í ca 18 mín. í miðjum ofni. 

Tillögur:
1 dl rúsínur í deigið eða
4 msk hörfræ eða
1 dl heslihnetuflögur


Hafraklattar

Innihald:

a)
1,25 bollar hveiti/spelt
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1/2 tsk kanill

b)
1 bolli smjör (lint)
1/2 bolli sykur/hrásykur (ég notaði hrásykur)
1 bolli púðursykur
2 tsk vanillusykur/vanillukorn (ég notaði vanillusykur)
2 egg

c)
3 bollar haframjöl
200 gr rúsínur

Aðferð:
  • Blandið a) saman í skál.
  • Hrærið b) saman í aðra skál. Fyrir þetta þarf vél eða þeytara.
  • Blandið a) og b) saman í skál. Það þarf nokkuð stóra skál, sérstaklega ef gerð er tvöföld uppskrift.
  • Bæti c) við blöndu a) og b). Ég notaði aðeins minna af rúsínum en er í uppskrift. Einnig hægt að hafa súkkulaði.
  • Á þessu stigi er deigið enn nokkuð blautt.
  • Búið til kúlur í höndunum, ca. á stærð við tómata, setjið á plötu og fletjið lítillega út. Ég var að ná svona 9 stykkjum á plötu. Athugið að klattarnir stækka í ofninum.
  • Bakið í miðjum ofni við 200° í svona ca 7-8 mínútur. Crucial að baka ekki of lengi. Þeir eiga rétt að byrja að vera brúnir. Ekki láta ykkur bregða þó klattarnir séu enn dúnmjúkir eftir baksturinn. Leyfið þeim að kólna, og þá dökkna þeir aðeins og harðna.
  • Útúr tvöfaldri uppskrift fékk ég 45 klatta, þ.e. 5 heilar plötur.

Marsipaneplakaka

Botn:
200 g hveiti
150g smjör
1 stk eggjarauða
1 msk vatn 

Fylling:
3-4 græn epli (fer allt eftir stærð þeirra og jafnvel færri ef þarf)
200 g hrámarsipan
250 g sykur
1 dl matreiðslurjómi
2-3 msk kanilsykur 

Vinnið hráefnið í botninn rólega saman með káinu, kælið deigið 15 mín.  Fletjið deigið út í eldfast mót upp á kantana, setjið smjörpappír í og fyllið af hrísgrjónum.  Bakið við 180 gráður í 10 mínútur.  Fjarlægið grjónin og bakið í 10 mín.  Skrælið eplin og kjarnhreinsið, skerið niður og dreifið vel yfir botninn.  Vinnið saman marsipan og sykur og blandið matreiðslurjómanum saman við.  Vinnið þar til kekkjalaust.  Stráið kanilsykri yfir eplin og setjið marsipan yfir, setjið svo aftur kanilsykur yfir.  Bakið í 180 gráður í 40-45 mín.  Berið kökuna volga fram með vanilluís eða rjóma. 


Súkkulaðipæ með marengs

Botn:
225 g digestivekex m/dökku súkkulaði
4 msk bráðið smjör

Fylling:
3 eggjarauður
4 msk sykur
4 msk maizenamjöl
6 dl mjólk
100 dökkt bráðið súkkulaði

Marengs:
3 eggjahvítur
150 g sykur
1/2 tsk vanillusykur

Kexið er sett í blender og hakkað í tætlur.  Því næst er smjöri blandað við það og þessari blöndu komið fyrir í pæforminu og þrýst upp við kantana.  Ágætt að miða við að pæformið sé 23 cm í þvermál.

Fylllingin er gerð þannig að eggjarauðurnar, sykur og maizenamjöli er hrært saman þar til það myndar létt mauk og ef nauðsynlegt reynist þá er ágætt að nota örlítið af mjólkinni til að fá blönduna til að verða betri.  Annars er afgangnum af mjólkinni hellt í pott og hún hituð rólega upp þar til sýður næstum á henni.  Því næst er mjólkinni hellt hægt í eggjablönduna á meðan hrært er í henni.  Eggjamjólkurblöndunni er síðan hellt í pottinn aftur og blandan hituð rólega upp þar til hún verður þykkari.  Brædda súkkulaðinu er að síðustu hrært í og þessu hellt yfir botninn.

Marengsinn er þeyttur á nokkuð hefðbundinn hátt.  Byrjað á því að þeyta eggjahvítur þar til stífar og 2/3 af sykrinum svo hellt smám saman í og þeytt áfram þar til blandan er stíf marengsblanda.  Afganginum af sykrinum og vanillusykri er svo blandað við marengsblönduna. 

Marengsnum er dreift yfir fyllinguna þannig að hann myndi lok yfir pæið og hann mótaður að vild.  Þetta er bakað við 160 gráður í miðjum ofni í 30 mín eða þar til marengsinn er gylltur.  Best er að bera þetta fram heitt eða volgt með vanilluís. 


Naan brauð (hefunartími 1,5 klst)

2/3 bolli (ca 160 ml) volgt vatn
1 tsk þurrger
1 tsk sykur
2 bollar (300 g) hveiti
1 tsk salt
4 msk ghee / olía
2 msk jógúrt/AB mjólk
2 tsk kalonji (svört laukfræ)

Hrærðu saman vatni, geri og sykur í skál þar til gerið er uppleyst og leyfið þessu að standa í 10 mín.  Sigta hveiti og salt í stóra skál og bæta við gerblöndu, helming olíunnar og öllu jógúrtinu.  Blandið saman í mjúkt deig og hnoðið svo í smátíma þar til blandan er mjúk og góð.  Setjið deig í stóra olíuborna skál, hyljið og leyfið þessu að hefast í 1,5 klst eða þar til deigið er orðið helmingi stærra.  Hnoðið deigið aftur saman eftir að það hefur fengið að hefast og skiptu því í 6 jafna hluta og flettu það út í naan sem eru ca 20 cm stór í þvermál.  Nota þarf ofngrind og setja álpappír ofan á hana sem hefur verið smurð olíu.  Eldið naan brauðin eitt í einu í ca 2 mín undir grilli þar til það er aðeins byrjað að brúnast og taka sig.  Svo á að smyrja naan brauðið með olíunni sem eftir var og henda nokkrum laukfræjum á og grilla það áfram í ca 30 sek.  Gott er að nota líka hvítlauk í stað laukfræja. 


Fljótandi súkkulaðikaka

300 g dökkt súkkulaði
120 g smjör
60 g sykur
2 egg og 3 eggjarauður
5 msk hveiti
1/2 tsk lyftiduft
100 g hvítt saxað súkkulaði
3/4 bolli mjólk
örlítið salt

Bræðið súkkulaði og smjör við vægan hita og látið kólna aðeins.  Því næst eru egg og sykur hrærð þar til létt og ljóst.  Þá er bræddu súkkulaðiblöndunni blandað við þeyttu eggin síðan þurrefni blönduð út í ásamt mjólk og þetta hrært varlega saman.  Sett í mót þar sem blandað verður að vera 3 cm þykk að minnsta kosti.  Hvítu súkkulaði er stráð yfir og hrært lítillega í .  Bakað við 220 gráður frekar ofarlega í ofninum í ca 12-15 mínútur.  Kakan á að loka sér að ofan en vera mjúk og fljótandi undir yfirborðinu þannig að yfirborð bylgjast upp ef mótið er hreyft.  Ef kakan er ekki nógu vel bökuð er hún bökuð í 2 mínútur í einu til viðbótar þar til hún er fullbökuð að ofan en ennþá mjúk inni í kökunni.  Ef hún er bökuð lengi þá fullbakast hún og líkist meira hefðbundinni súkkulaðiköku. 

Best er að berja kökuna volga fram með góðum vanilluís (t.d. gamla ísnum frá Vesturbæjarísbúðinni) eða rjóma


Súkkulaðibitakökur

300 g hveiti
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
170 g smjör
220 g púðursykur
100 g sykur
1 tsk vanilludropar
1 egg
1 eggjarauða
300 g gróft saxað suðusúkkulaði

Hráefni blandað en suðusúkkulaði blandað við síðast með sleif og bakað í miðjum ofni við 165-170 gráður í mesta lagi 15 mínútur


Kókosbollueftirréttur

Jarðaber
Bláber
Bananar
   og ýmsir aðrir ávextir eftir því sem til er (þó ekki sítrusávextir)
Kókosbollur 1-2 pakkar
Súkkulaði, saxað
Þeyttur rjómi eða ís

Ávextirnir eru skornir niður í bita og lagðir í ofnfast fat.  Þar ofan á er dreift söxuðu súkkulaði eftir smekk.  Kókosbollur skornar í tvennt og skurðarsárið látið snúa upp þegar þeim er raðað ofan á ávextina.  Þetta er svo bakað við 150 gráður í 5-10 mín eða þar til kókosbollurnar byrja að dökkna örlítið. 

 Borið fram með þeyttum rjóma eða ís


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband