Færsluflokkur: Ís

Toblerone ís

6 egg aðskilin
1 tsk vanillusykur
350 g Toblerone (150 g brætt og 200 g saxað)
1 bolli púðursykur
1/2 L þeyttur rjómi

Fyrst eru eggjarauður og sykur þeytt þar til létt og ljóst.  Síðan er vanillusykri og bræddu toblerone bætt í út og hrært.  Þar á eftir fer þeytti rjóminn og saxaða tobleronið.  Svo er þeyttum hvítum bætt við síðast með sleif. 


Heilsuís í anda Danska kúrsins (fyrir ísvél)

300 gr. jarðaber (eða aðrir frosnir ávextir, einir og sér eða í bland við aðra)

200 gr. létt AB mjólk

250 gr. undanrenna

sætuefni eftir smekk

Þessu er öllu blandað saman í blandara og síðan sett í ísvél

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband