13.8.2008
Gúllas og kartöflumús
600 g nautakjöt í teningum
100 g beikon
2-3 laukar
1 1/2 msk paprikuduft
1 tsk kúminduft
cayennepipar, salt,
2 paprikur
1 dós tómötum
1 msk tómatþykkni
1 dl sýrður rjómi
50 g smjörlíki
Kartöflumús:
1, 5 kg kartöflur
150 g smjör
0,5 l sjóðandi mjólk
Aðferð
Best er að kaupa beikonkurl eða bita beikonið smátt og matreiða það. Laukur, krydd og paprika léttsteikist. Kjötið á að brúna í smjörlíkinu og hellið svo beikoni og lauk yfir ásamt tómötum úr dós. Þetta er látið malla í 45 mínútur eða þar til kjötið er orðið meyrt. Að síðustu er sýrðum rjóma hellt út í og þetta látið malla aðeins lengur eða þar til rétturinn er tilbúinn.
Kartöflurnar eru skrældar og skornar í sneiðar og soðnar í vatni án salts. Vatninu er hellt af og kartöflurnar þerraðar aðeins. Handþeytari eða töfrastafur er notaður til að mauka kartöflurnar og út í þær fer sjóðandi heit mjólkin, salt og pipar eftir smekk og allra síðast kalt smjörið.
Flokkur: Heitur matur hvers konar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.