23.2.2008
Klassískt entrecote bordelaise
2 (300 g) entrecote steikur
100 g smjör
2 skalottulaukar, saxaðir fínt (ég hef notað rauðlauk og skorið hann í mjóa strimla)
100 ml rauðvín
200 ml demi-glace eða 200 ml nautakjötssoð
2 msk hökkuð steinselja (hef sleppt og það gerir minna til heldur en maður heldur)
Salt
Svartur pipar
Snöggsteiktu steikurnar:
Kryddaðu steikurnar með salti og pipar á báðum hliðum. Hitaðu pönnuna í botn og settu helming smjörsins á hana. Settu steikurnar á pönnuna og brúnaðu á báðum hliðum - ca 2-3 mín á hverri hlið til að loka kjötinu og leyfðu svo kjötinu að eldast skv smekk þínum eða hentu þeim smástund inn í ofn með kjöthitamæli. Þegar steikur eru tilbúnar þá eru þær látnar bíða.
Eldaðu laukinn:
Í sömu pönnu eldaðu þá laukinn. Laukurinn á að verða mjúkur og rétt að byrja að brúnast.
Fjarlægðu smjör af pönnunni.
Þegar laukurinn er tilbúinn bættu þá rauðvíni á pönnunni og hrærðu vel í.
Bættu núna við nautakjötssoðinu og hrærðu þar til allt hefur náð að blandast vel saman, leyfðu þessu að malla í 5 mín eða þar til "redúserað" eða soðið niður ... uppgufun hefur átt sér stað.
Skerðu smjörið sem eftir er í hæfilega litla ferninga og bættu þeim í sósuna, einum í einu og hrærðu á milli. Þá blandast smjörið vel í blönduna sem fyrir er og þetta gefur sósunni fallega áferð og rétt bragð í lokin.
Raðaðu á diska:
Skerðu kjötið þvert í þykkar sneiðar og raðaðu á diska.
Bættu smávegis hakkaðri steinselju við sósuna og helltu þá smávegis af sósunni yfir hverja steik.
Afgangur sósunnar ætti að bera á borð í sósuskál.
Ágætt er að bera þennan rétt fram með snöggsteiktum litlum kartöflum, ofnbökuðu rótargrænmeti og strengjabaunum svo dæmi séu tekin.
Flokkur: Heitur matur hvers konar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.