Uppskrift fyrir fjóra:
500 gr. Tagliatelle frá DeCecco
250 gr. Mascarpone ostur
100 gr. tómatar, gróft niðurskornir
1 pkn. (60 gr.) Parmesan ostur, rifinn
1 bréf (80 gr.) Parmaskinka (frá Fiorucci), skorin í lengjur
Salt og nýmalaður svartur pipar
Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á umbúðum. Sigtið pastað og setjið það í stóra skál. Blandið Mascarpone ostinum, tómötunum og Parmaskinkunni vel saman við. Kryddið eftir smekk. Stráið Parmesan osti yfir og berið fram.
Flokkur: Heitur matur hvers konar | Breytt 14.8.2007 kl. 01:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.