Tagliatelle með Mascarpone, tómötum og Parmaskinku

Uppskrift fyrir fjóra:

500 gr. Tagliatelle frá DeCecco
250 gr. Mascarpone ostur
100 gr. tómatar, gróft niðurskornir
1 pkn. (60 gr.) Parmesan ostur, rifinn
1 bréf (80 gr.) Parmaskinka (frá Fiorucci), skorin í lengjur

Salt og nýmalaður svartur pipar
Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á umbúðum. Sigtið pastað og setjið það í stóra skál. Blandið Mascarpone ostinum, tómötunum og Parmaskinkunni vel saman við. Kryddið eftir smekk. Stráið Parmesan osti yfir og berið fram.


Rækjubrauðterta

Hvítt samlokubrauð 4 lög
300 g majones
1 dós sýrður rjómi
300 g rækjur
½ paprika
6 stk harðsoðin egg
aromat

Hrærið saman majonesi og sýrðum rjóma.  Látið leka vel af rækjunum.  Saxið paprikuna smátt, stappið eggin með gaffli og blandið öllu saman.  Setjið salatið á lög brauðtertunnar og skreytið síðan með rækjum, eggjum og grænmeti.  Ekki þarf að setja salatið á efsta lag brauðtertunnar.


Skinkubrauðterta

Hvítt brauðtertubrauð í 3 lögum
150 g majones
100 g sýrður rjómi
aromat
pikant krydd
150 g skinka
5 stk harðsoðin egg
½ dós grænn aspas

Hrærið saman majonesi, sýrðum rjóma og kryddið.  Skerið skinkuna í sneiðar og stappið eggin með gaffli, Brytjið aspasinn niður og blandið síðan öllu saman.  Setjið skinkusalatið á milli laga brauðtertunnar og skreytið með skinku og öðru tiltæku.

Túnfiskbrauðterta

Hvítt brauðtertubrauð í 3 lögum
200 g majones
100 g sýrður rjómi
5 stk harðsoðin egg
200 g túnfiskur
1 stk laukur
aromat
Skraut:
salat
túnfiskur
egg

Blandið saman majonesi og sýrðum rjóma og kryddið með aromati.  Stappið eggin með gaffli.  Látið leka vel af túnfiskinum og saxið laukinn mjög smátt.  Blandið öllu saman og setjið á milli laga brauðtertunnar.  Smyrjið salatinu einnig á hliðarnar og skreytið síðan með eggjum, salatblöðum og túnfiski


Skúffukaka

Bæði stór og lítil uppskrift
  
Lítil Stór
250 gr. hveiti 375
1 tsk. lyftiduft 1 1/2
1/2 tsk. natron 1
1 tsk. salt 1 1/2
300 gr. sykur 450
4 msk. kakó 6
125 gr. br.smjörl.190
2 1/2 dl. mjólk 3
2 egg 3  
1 tsk vanilludropar

Aðferð
Þurrefnin sett í skál
mjólk og egg næst, hrært.
Smjörlíki sett síðast
Bakað við 180°- 190° þangað til kakan er laus frá hliðunum á skúffunni.


Krem á skúffuköku:
100 gr. smjörlíki
cirka einn pakki af flórsykri
smá kakó (eftir smekk)
kaffi, eftir smekk
vatn (þegar kaffibragð er of mikið)
Skellið öllu saman og hrærið, smakkið svo til hvað vantar útí.


Vegetable vindaloo

Ingredients
Serves 2
1 Medium potato peeled and chopped
2 carrots peeled and chopped
1 parsnip peeled and chopped
Quarter of a small cauliflower chopped
1 Broccoli floret chopped
1 Cup of Curry Massalla Gravy
Quarter of an onion finely chopped.
2 Teaspoon Curry Powder
2 Teaspoon Chilli Powder
8 Finely Chopped Cayenne Chillies
4 Cloves Crushed Garlic
2 inches Root Ginger grated
5 Tablespoons Vegetable Oil
4 Tablespoons roughly chopped coriander leaves
1 Tablespoon whole coriander leaves
1 teaspoon Garam Massalla  

Method
Chop the vegetables to an even size about 4mm cubed. Bring a pot to the boil with a little salt and then boil the vegetables for 5 minutes. Make a paste of the curry powder and chilli powder with a little water. Fry the onion until translucent in the veg oil then add the garlic, ginger and chilli and stir fry on medium for a further 5 minutes. Add the curry and chilli powder paste and stir in and fry for a further 30 secs. Add the vegetables and half the Massalla Gravy and simmer for 10 minutes or until the vegetables are cooked, stirring constantly. If needed add more massalla gravy and water to prevent the curry becoming too thick or dry. Now add the finely chopped coriander leaves and cook for a further minute. Serve with the whole coriander leaves sprinkled over the top.


Indverskt Dahl (Mungbaunaréttur)

Indverskur mung baunaréttur
250 g soðnar mung baunir eða rauðar linsubaunir
650 g gulrætur, skornar í frekar stóra munnbita
4 msk olía, t.d. lífræn
2 stórir laukar, smátt skornir
1 tsk turmeric
1 tsk chilli duft
1 tsk paprika
1 tsk salt, t.d. gróft Geo salt
1 lítið höfuð af sellerýrót skorið í litla munnbita (hægt að nota t.d. sæta kartöflu eða rófu í staðinn = rótarávextir)
Einnig hægt að nota hvítlauk + engifer + marið sítrónugras ásamt lauknum ef vill.

Aðferð:
Látið baunirnar liggja í tvo tíma áður en þær eru soðnar.  Fínt að nota þang + engifer + ferskt vatn til að sjóða baunirnar upp úr.  Alltaf að hella því vatni frá baununum sem þau eru látnar liggja í.  Útvatnaðar baunir eru soðnar með örlitlu salti þar til þær eru mjúkar (stendur yfirleitt á pakkanum hver suðutími er).  Sigtið vatnið frá og stappið baunirnar örlítið saman.  Sjóðið gulræturnar í ca 10 mín, sigtið vatnið síðan frá. 
Hitið olíu í góðum potti (ágætlega stórum m.v. þennan skammt).  Steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur, blandið kryddunum saman við og sellerýrótinni og steikið þar til rótin er orðin mjúk.  Blandið örlitlu vatni saman og látið sjóða í 3 mín.  Setjið síðan gulræturnar og mungbaunirnar saman við.  Hrærið vel saman.
Kannski þarf að bæta örlitlu meira vatni út í þannig að kássan sé ekki of þykk.  Kryddið endilega meira eftir smekk. 
Þessi réttur eru góður með t.d. hýðishrísgrjónum, flottu ávaxtasalati og raitusósu.  Einnig er gott að fá sér bankabygg/hýðishrísgrjón með til að fá sem mest úr næringu allra hráefnanna.


Gulrótarsúpa frá Manni lifandi

1 laukur, saxaður smátt
1 hvítlauksrif, saxað
1 rifinn engiferrót, ca 3 cm
olía til steikingar
Handfylli af kóríander, smátt saxað
1 tsk turmerik
1 tsk broddkúmen
smá cayennepipar
4 tómatar
3 bollar af smátt skornum gulrótum
grænmetiskraftur 2 msk
Vatn ½ ltr
1 dós af kókosmjólk – nota light helst
smávegis sítrónusafi
salt og pipar eftir þörfum

Aðferð:
Léttsteikið grænmetið í olíu og þurrkryddum.  Bætið vatni út í og sjóðið í 20 mín eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar, bætir saman við söxuðum tómötum, kókosmjólk og kryddum ásamt salti og pipar.  Maukið súpuna með töfrasprota.  Smakkið síðan til með sítrónusafa og fersku kóríander.  Leyfið súpunni aðeins að standa og taka sig áður en hún er borin fram.


Pico de gallo = hanagoggur (mexíkóskt grænmetissalsa)

Innhald
6 miðlungi stórir tómatar í ferningum
1 miðlungistór laukur niðurskorinn
1/4 bolli saxað kóríander
2 to 4 ferskt chili t.d. af tegundinni Jalapeno, fræhreinsað og saxað
Hvítlauksduft, bara örlítið
Salt, helst maldonsalt
 
Blanda vel öllum hráefnum í skál ásamt 1/2 bolla af köldu vatni.  Leyfið hráefnunum að taka sig í smástund í skálinni.  Hægt að nota með ýmsu, til dæmis gott með mexíkóskum flögum eða í ýmis konar eldamennsku. 


Guacamole, einföld grunnuppskrift

This is a simple, basic guacamole recipe. You can add other ingredients such as sour cream to make it creamier. This recipe is the old fashion traditional version.  A party favorite!

Ingredients:

3 ripe avacados
1 romo tomatoes
1/8 cup of finely diced onion
salt to taste
1 Tblsp. fresh lemon juice
white or red onion adds more color!
save the pit and place in center of bowl
Instructions:

Cut avacados in half and scoop out flesh. Avacados should be soft enough to press with a fork.

Mash them well. Next, add diced tomato, onion and salt to taste.

To keep the beautiful green color and fresh taste add some fresh lemon juice.

Garnish with a clean avacado pit in center of bowl. Sprinkle with some tomato and onion. You can also garnish with a few sprigs of celantro.

It is ready to serve or cover and refrigerate.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggfærslur 13. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband